Á fóninum þessa vikuna...

Smelltu á "Á fóninum..." hér að ofan til að hlusta á lögin
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Josh Logan - Feel good
-----------------------------------------
Á móti sól - Stan (live Eminem cover)
-----------------------------------------
Magnetico (Rafael Moreira) - Not to blind to see
-----------------------------------------
Bloodgroup - Moving like a tiger
----------------------------------------
Everything after (Dana Andrews) - Not a lie

Innskráningar kubbur

Er ég kristinn?

27. janúar 2011 klukkan 03:47
Vorið 1988 var ég skírður Hafþór Þórarinsson. Fjórtán árum seinna fermdist ég og ég hef alltaf verið skráður meðlimur þjóðkirkjunnar. Er ég þá kristinn? Þegar ég hugsa mig vel um finnst mér ég ekki geta svarað því játandi. Ég meina, þegar kemur að því að velja upp á milli þess að trúa á þróunarkenninguna eða sköpunarkenninguna þá vel ég hiklaust þróunarkenninguna enda byggir hún á þeim vísindum sem okkur eru kennd í skólakerfinu þar sem lögð er áhersla á staðreyndir, vísindi og rökhyggju. Innihald biblíunnar verður seint stutt með vísindalegum aðferðum eða rökrænni hugsun.

Af hverju hef ég þá ekki skráð mig úr þjóðkirkjunni? Oft hef ég velt því fyrir mér en alltaf heldur eitthvað aftur af mér. Hvað getur það verið? Lítum á sögu kristinnar trúar á Íslandi. Við höfum verið kristin þjóð í yfir þúsund ár. Við höldum upp á fæðingu og upprisu krists í formi jóla og páska. Ótal hefðir hafa skapast. Við fræðum börn um rétt og rangt í formi boðorðanna. Við tengjum helstu atburði lífsins við kristni, skírum ungabörn, fermum þau á unglingsaldri, játum ást okkar frammi fyrir guði og kveðjum loks þá liðnu.


Allar þessar hefðir heilla mig og ég er ekki tilbúinn að henda þeim frá mér. Boðorðin eru falleg. Jól og páskar eru í mínum huga yndislegur tími sem færir mér frið og kærleika sem ég deili með mínum nánustu. Við skírn sameinast fólk og biður fyrir framtíð barnsins. Barnið fermist og staðfestir með því samastað sinn í þjóðfélaginu. Við giftingu staðfestir fólk ást sína hvort á öðru. Að lokum er svo jarðarförin þar sem við kveðjum einstaklinginn með þakklæti fyrir allt það sem hann hefur fært inn í þennan heim.


Þessar hefðir eru líklega það sem heldur aftur af mér. Ég heillast af þeim sem og því sem þær standa fyrir. Ég á erfitt með að hugsa mér lífið án þeirra. Þær færa mér gleði, rósemd og huggun þegar ég þarf á því að halda sem í mínum huga er helsti tilgangur trúariðkunar. Ég er því ánægður með að hafa fengið kristinfræðslu á mínum uppvaxtarárum jafnt innan sem utan skólakerfisins.


Þetta skilur mig eftir með ótal spurningar. Er slæmt að fræða skólabörn um kristna trú? Er munur á trúfræðslu og trúboði? Er hægt að ná fram sama tilgangi án þess að blanda því inn í trú? Er raunhæfur möguleiki að fjarlægja iðkun kristilegra hefða úr skólakerfinu? Er ég trúaður?
Eina svarið sem mér dettur í hug er einfalt. Ég veit það ekki.

Reykjavík, Mcdonalds og tónvinnsluskólinn....

23. september 2008 klukkan 16:57
Oh, my love, my darling
I've hungered for your touch,
a long lonely time.

Okkar sól á engan samastað,
hún svífur um á vetrarnótt
Og verður senn í vatnsbera,
þá víkja sorg og þraut

Þessir textar hafa að sjálfsögðu ekkert að gera með þátttöku mína í Singing Bee þar sem ég er bundinn þagnarskyldu þangað til þátturinn verður sýndur en djöfull er ég pirraður út í sjálfan mig að hafa ekki getað munað þessa texta þegar það hefði komið sér mjög vel....en ég náði reyndar að búa til nýjan texta við annað lag sem ég kannast ekkert við sem var fyndið....

But anyway....ég er fluttur í höfuðborgina, byrjaður að vinna á mcdonalds og byrjaður í Tónvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna en ég þarf að þjóta...skelli inn annari færslu einhverntímann á næstu dögum....

Heyó

Blogg....?

20. maí 2008 klukkan 10:48
....nei, ekki í þetta sinn en það fer að koma að því!


Kv. Kóngurinn

Kóngurinn endurfæddur

...here I am locking horns with the stallion, failing to hold my head up, I'll go back again

02. maí 2008 klukkan 10:38
Þetta lag er þvílík og önnur eins snilld að það hálfa væri helmingi meira en nóg!
Og þessi flutningur á því er snilld. Mæli líka með því að þið tékkið á fleiri myndböndum með Live á Youtube.

Viva Las Vegas!

04. apríl 2008 klukkan 13:39
Jæja, ákvað að skella einu bloggi hérna inn þar sem ég er nú búinn að eldast um eitt ár frá því ég bloggaði síðast.
Sýningar á Lísu í undralandi í fullum gangi, 3 sýningar búnar, uppselt á tvær af þeim og búið að panta slatta af miðum á næstu sýningar.
Það eru sem sagt tvær sýningar á sunnudaginn, kl. 14.00 og 20.00, svo eru sýningar á mánudag, þriðjudag og miðvikudag, allar klukkan 20.00.
En já, viðbrögðin við þessari sýningu hafa verið vægast sagt góð og ég hvet því alla til að mæta og ég vil meina að hér sé um að ræða eina af mögnuðstu uppfærslum síðustu ára á leiksýningu hér í ME.

Svo er að fara að hefjast svakalegur tónleikatúr hjá karlakórnum. Tónleikar á vopnafirði 11. apríl, Egilsstöðum 13. apríl, Norræna Húsinu í Reykjavík miðvikudaginn 16. apríl og svo höldum við í Póllandsreisu þar sem haldnir verða tvennir tónleikar, og svo lýkur þessu með tónleikum í Skriðdal til styrktar íþróttafélagi fatlaðra síðasta vetrardag, 23. apríl.

Annars hef ég nú voða lítið að segja, reikna ekki með því að ég fari norður í menningarferðina/söngkeppnina.

Er annars eitthvað í gangi um helgina....? Spurning um að kíkja á Rokkað hringinn með Rás 2 og Mónitor tónleikana í kvöld á eskifjörð.

Annars þá er Stefán Smári búin að setja inn myndbönd frá því við fórum til Trier. Getið tékkað á því og fleiri skemmtilegum myndböndum á youtube prófilnum hjá honum hér.

Náði 3. sæti

29. febrúar 2008 klukkan 23:48
Já, ég náði loks að komast í verðlaunasæti á Barkanum og mér líður eins og ég hafi unnið!
Maður hefur auðvitað oft fengið hrós og svoleiðis eftir síðustu Barka en maður einhvernveginn streitist alltaf við að taka fullt mark á því og hugsar að stór hluti af hrósunum komi aðallega fyrir kurteisissakir en það er frábær tilfinning að fá staðfestingu á því að maður sé að gera eitthvað af viti frá óhlutstæðri dómnefnd og það á síðasta Barkanum sem ég tek þátt í.
Brosandi

Ég vil þakka kærlega fyrir mig og þakka líka félögum mínum í hljómsveitinni fyrir skemmtilegt og vel heppnað samstarf og að sjálfsögðu góðan undirleik í laginu mínu.
Vill líka óska nemendaráðinu og öðrum sem komu að þessu til hamingju með virkilega vel heppnaðan Barka yfir heildina séð og líklega þann besta í nokkur ár myndi ég segja að undanskildum tveim virkilega leiðinlegum hljóðmistökum sem höfðu slæm áhrif á tvö annars stórkostleg atriði. Björgvin Franz fór á kostum sem kynnir og það fór ekkert á milli mála að þar var atvinnumaður á ferð.
Önnur úrslit á keppnini voru þau að Katrín lenti í öðru sæti og Hrafnhildur sigraði. Tinna vann símakosninguna og athyglisverðasta atriðið var Britney með Höllu, Dagrúnu og Kobbu en ég held að það geti enginn neitað því að það var vissulega athyglisverðast.
Óska þeim öllum til hamingju með verðskuldaðan árangur.


Gummi Harðar, tók lagið mitt upp á kameruna hans Stefáns Smára og ég skellti því á Youtube þannig að ef þið misstuð af þessu eða viljið horfa á þetta aftur þá getiði bara ýtt hér.

Update: Stefán Smári er búinn að setja sitt lag inn á youtube. Tékkið á því hér.
Ps. Ósýnilegi hljómborðsleikarinn er ég.


Meðal þess sem ég fékk í verðlaun var ljósakort þannig að ég hef ákveðið að gerast hnakki. Fróðlegt að sjá hvernig það á eftir að koma útSvalur

Suður á eftir.... út á morgunn....

16. janúar 2008 klukkan 09:29
...og ég er allur út í einhverjum tussu hlaupabólum! Æðisleg tímasetning!
Finn nú samt voða lítið fyrir því þannig séð nema þegar ég horfi í spegil, stoppar mig allavegana klárlega ekki í því að fara út!

Fyrsti leikurinn á morgunn á móti Svíum, ef við vinnum hann þá hef ég mikla trú á því að við gætum náð ágætlega langt í þessu móti.

Annars þá bloggaði ég líka síðustu helgi hér fyrir neðan en síðan bilaði síðan og var bara að komast aftur í lag núna...

Lögin sem eru mest á fóninum hjá mér þessa stundina er t.d. In the air tonight í rockstar útgáfunni með Ryan Star....útfærslan á því, strengjasveitin, trommurnar eru einfaldlega bara hrein snilld!
Getið fundið það á Youtube... svo mæli ég líka með öllu sem þið finnið á Youtube frá Thirsty Toad tónleikum Magna og Dilönu í Ottowa

Ha det bra!

Mikið að gera á næstunni...

12. janúar 2008 klukkan 20:24
Já, suður á miðvikudag, noregur á fimmtudag og svo bara bullandi stemmning að fylgjast með EM og hætta að hugsa um allt annað á meðan!

Svo verður nóg að gera þegar ég kem aftur, Barkinn áttunda febrúar og svo þorrablót Fljótsdælinga þann níunda. Svo ekki sé minnst á lærdóminn sem bíður mín væntanlega þegar ég kem aftur þótt ég sé nú reyndar ekki í nema 10 einingum.
En já, ég skipti um lag í Barkanum, ákvað að taka frekar I alone með Live sem verður bara stuð.
Svo er ég auðvitað í hljómsveitinni líka, held að ég sé í sjö lögum að mínu meðtöldu.

Sit nú bara heima í sveit núna að horfa á sjónvarpið, væri nú gaman að vera með eitt stykki svona 150 tommu skjá fyrir framan mig!

Nett að hafa eitt stykki svona inn í stofu

Svo var Eiður Smári víst að skora áðan fyrir Barcelona, kom þeim yfir 1-0.
Get ekki verið annað en sáttur með frænda.

Hér getið þið hlustað á og séð myndbandið við lagið sem ég tek á Barkanum, I alone

Hérna er líka frábær útfærsla Magna á því úr Rockstar þáttunum


Níu dagar í EM

09. janúar 2008 klukkan 00:37
Farið að styttast í EM og get ekki neitað því að ég er farinn að hlakka alveg ótrúlega mikið til!
Fer suður á miðvikudaginn í næstu viku og svo út snemma á fimmtudagsmorgninum og svo er bara fyrsti leikurinn um kvöldið.... snilld!

ME var rétt í þessu að komast áfram í aðra umferð í Gettu betur og ég vil óska þeim til hamingju með þann árangur.

Við í Gjerde og félögum erum búnir að vera upp í sveit svoldið að undanförnu að búa til tónlist og erum meðal annars búnir að taka upp nokkur demó að lögum.
Stebbi tók síðan til og bjó til demó myndband við eitt demó lagið og við ákváðum að skella því bara inn á Youtube.

Lagið sem um ræðir gengur undir nafninu "The O.C." og myndbandið geturðu séð hér.
Legg áherslu á að þetta er bara demó.


Hafthorarinsson.blog.is

11. desember 2007 klukkan 21:59
Búinn að stofna Moggablogg inn á hafthorarinsson.blog.is
Veit ekki hvort ég blogga meira hérna.... kemur bara í ljós.

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Hafþór Þórarinsson
  • Netfang: hafthorarinsson@gmail.com
  • Staður: Fljótsdalshreppur
  • Heimilisfang: Víðivellir Ytri 2
  • Atvinna: Kennaranemi
  • Hjúskaparstaða: Á lausu
  • Um mig: Er í grunnskólakennarafræði við HÍ. Helstu áhugamál eru íþróttir og tónlist. Ég er hljómborðsleikari auk þess sem ég hef gaman af því að syngja og spila á gítar. Er með tónlistarsíðu á Facebook sem má finna með því að leita að "Hafthorarinsson" á Facebook.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit